
Jæja þá er Ísól búin að útskrifast, útskrifaðist með Distinction með tvöfalt BA próf, Kynjafræði og Spænsku. Við erum ákaflega glöð og sæl með þennann áfanga hjá Ísól.
Við fengum í dag atvinnuleyfi í 3 ár þannig að sú óvissa er farin, vorum farin að búast við hinu versta. Frekar erfitt að flytja heim í ástandið eins og það er, þannig að vonandi getur maður farið að snúa mínus í plús, og svo verður þessi helvítis kreppa vonandi liðin hjá eftir 3 ár.
Hér eru fleiri myndir frá útskriftinni hjá Ísól.
22,06,09
Fréttir og fleira
23,04,09
Dagar í dalnum týnda
Svaka háfleygt nafn þegar það er búið að snúa því yfir á íslenskuna.
Ég er með þessa stuttmynd í keppni á Mec.ca endilega kjósið ef að þið hafið tækifæri til
tengillinn til að kjósa er http://tiny.cc/sYcPe og myndbandið heitir Tashish-Kwois Days in the Lost Valley
16,04,09
Búið að selja..

Húsið í Metchosin, Libra Place
Búið að selja húsið og segja okkur upp leigunni á Tudor Avenue, Við eigum að vera farin út fyrir 30 júní. Okkur grunaði þetta og byrjuðum að leita að húsi eða íbúð í síðustu viku. Fórum og skoðuðum um helgina og vorum samþykkt sem leigendur í gær.
Við erum á leið útí sveit – Metchosin heitir byggðarlagið, um 40 mínútur fyrir utan Viktoría, getið séð kort af svæðinu hér View Larger Map
Við erum bara frekar spennt, þetta er svæði sem við hefðum getað hugsað okkur að kaupa hús, og þetta verður svona tilraun. Ísabella og Óskar eru búin að fá pláss í skólanum, sem er 3 mínútur frá húsinu – heitir Hans Helgesen Elementary eftir einhverjum Svíja sem var svona brautryðjandi í Metchosin.
Það er nóg pláss fyrir gesti, og þar sem að við erum ekki nema tæplega í 7 tíma fjarlægð(svipað og að keyra til Egilstaða) þá er auðvitað tilvalið fyrir fjölskyldu og vini að koma í heimsókn.
03,04,09
Ganga – Juan de Fuca Marine Trail

Var að setja inn sögu á BCoutside.com um gönguferð sem ég, Óskar, Sigurjón og Óðinn fórum í. Er á ensku enn fyrir þá sem að skilja hana ekki eru fullt af myndum til að skoða.
Góða helgi!
18,03,09
Engar fréttir eru góðar fréttir
Það er allt búið að vera að mestu leyti með kyrrum kjörum hjá okkur undanfarna mánuði. Við erum enn á Tudor Avenue þó svo að það fari að styttast í flutninga. Erum að verða spinnegal á öllum skoðununum, síðustu vikur höfum við þurft að vera að heiman á fimmtudögum og laugardögum frá 1-6. Þá eru skoðunardagar og með hækkandi sól virðist sem að fólk fái meiri áhuga á fasteignum.
VISA málin eru enn í þróunn, Ég er ekki búinn að fá svar um hvort ég hafi mátt vinna hér síðustu mánuði, það hlítur að fara að komast á hreint. Ísól fékk góðar fréttir með atvinnuleyfi eftir nám. Við fáum bæði 3ja ára atvinnuleyfi í sumar eftir að Ísól útskrifast. Það er mjög þægilegt, enda ferlega leiðinlegt að þurfa að sækja um þessi leyfi á hverju ári, fyrir utan kostnaðinn en hvert skipti sem nýtt plagg er útgefið fyrir fjölskylduna þarf að borga 65,000 kall.
Kreppan, það verður að minnast á hana, leiðinlegt að heyra frá klakanum allar þessar fréttir af atvinnuleysi og leiðindum – flestir í stórfjölskyldunni okkar eru sem betur fer á svipuðum stað, en þó hafa nokkrir hafa fengið að kenna á þessum fjanda. Við erum svosem heppinn með að vera í námi erlendis, en förum nú ekkert varhluta af þessu, það hækkaði auðvitað allt hér í Kanada um 100% þegar gengið á blessuðu krónunni fauk út í veður og vind, en nóg af þessu rausi.
Krakkarnir hafa það gott, Óskar stendur sig ótrúlega vel í skólanum, fékk einkunnir í síðustu viku og fékk allt í topp, drengurinn kom hér mállaus og á 3 árum er hann kominn í efra hlutfall bekkjarins í einkunum, greinilegur föðurbetrungur á ferð. Ísabella er búinn að vera dugleg í sínum skóla, með flottar einkunnir og fær extra prik fyrir kurteisi og vandaða framkomu, það eru nú allir svolítið hissa á því hér á heimilinu þar sem unga daman lætur nú heyra í sér duglega ef að eitthvað er ekki að hennar skapi, sem er stórt – aðallega á morgnanna þar sem hún slær morgunfýlumeistaranum mér við í morgunfýlunni. Reyndar fyndið að sjá þessa mjónu nývaknaða allveg brjálaða yfir því að foreldrarnir dirfist að vekja hana svona snemma. Þetta verður eitthvað skrautlegt eftir c.a 10 ár!
Við erum farin að hlakka ógurlega til sumarsins, enda orðin góðu vön, finnst agalegt hvað það er kalt 7 stiga hiti í mars það er skelfilegt!! Svona er maður fljótur að venjast betri hlutum – Við komum ekkert heim í sumar, ætlum að ferðast um British Columbia og þá aðallega á meginlandinu sem að við höfum verið frekar lin við að heimsækja.
Enn nóg af blaðri, over and out.
22,01,09
Jóla jóla jóla myndir

Ísabella og Óskar á aðfangadagskvöld
Já rosa dugleg alltaf hreint að skrifa á blessað bloggið. Haustið hefur verið viðburðarikt í skólum og vinnu og flest gengur sinn vanagang. Lentum í smá hiksti þó. Húsið sem við erum að leigja var sett á sölu okkur til mikillar gleði eða hitt þó heldur. Sáum fyrir okkur hópa af skoðurum inn á gafli, enn svo fór þó ekki. Fólkið sem á húsið setti 20 milljónum meira á húsið en fasteigna salinn ráðlagði og virkaði það líka svona vel til að fæla frá skoðendur. Nú er búið að taka húsið af sölu, enn við erum þó ekki búin að fá nein svör við því hvort við þurfum að flytja eftri 2 mánuði eða ekki.

Selma alveg að tapa sér í Pökkunum
Innflytjenda eftirlitið var líka með einhverja stæla og setti mig útaf sakramentinu, ég er því eins og stendur ólögleg vera hér í Kanada. Málið er að Ísól er nú að útskrifast blessunin og því voru áfangarnir hennar aðeins færri á haustönn, enn það má víst ekki leyfa mökum að að vinna fyrir sér ef að námið er ekki fullt. Þetta stendur reyndar hvergi skýrum stöfum svona til að forðast miskilning. Ég þarf því að sækja um aftur og borga aftur og aftur. Svone er þetta, af einhverjum ástæðum eru Innflytjenda eftirlit í flestum löndum hálf soðin fyrirbæri.

Ísabella upprifinn af spenningi
Ísól er auðvitað að útskrifast í júní og okkur hlakkar til þess, þó er það líka kvíðavænlegt eins og öll önnur tímamót. Ísól fær 3ja ára atvinnuleyfi hér í Kanada eftir útskrift. Spurning hvort ég fái atvinnuleyfi í leiðinni ef ekki þarf ég líklegast að finna mér vinnu í einhverju sweatshoppi í Vancouver með öllum hinum ólöglegu innflytjendunum.
Við áttum fín jól átum drukkum og hittum fólk og fylgja hér forláta ljósmyndir af þeirri gleði allri.

Óskar fagnar fæðingu frelsarans með vopn í höndunum
Þökkum öllum sem að sendu pakka, kort eða/og gúmmelaði…
14,09,08
Saltspring Island

Fórum með Sif og kó í útilegu á Saltspring Island. Svaka fjör og mikið stuð. Krakkarnir voru í essinu sínu, ekki amalegt að geta synt og buslað í vötnum á haustdögum
Saltspring Island er lítil eyja utan við Vancouver eyju – mikið af hippum, listamönnum og ýmsum spírum sem að búa þar. Hér er Slideshow frá ferðinni.
10,09,08
Bamfield

Vá 2 mánuðir síðan síðasta blogg, ekki nógu gott!
Eins og flestir vita stoppuðum við á Klakanum í sumar í 3 vikur náðum að heimsækja flesta, ekki alla því miður sorrý til þeirra.
Síðan við komum heim höfum við brallað ýmislegt. Eitt af því var ferð til Magnusar, Pam og Oluna í Bamfield. Bamfield er lítið þorp á vesturströnd Vancouver eyju. Þar er stór hafrannsóknarstöð sem að Magnús var að vinna hjá í sumar. Við gerðum ýmislegt, fórum í bátsferð, á ströndina, borðuðum krabba og lékum okkur í sjónum. Myndir segja meira en mörg orð þannig að hér er linkur á slideshow frá ferðinni.
16,06,08
Bangsi festur á vídeó
Sigurjón er búinn að pósta nokkuð skemmtilegu vídeói á síðunni þeirra skellið ykkur þangað og skoðið



























