
Iblog fór á hausinn og lét engann vita, henti blogginu okkar, þökk sé google Þá gat ég bakkað það upp svo það er enginn skaði skeður. Við höfum ekkert bloggað ansi lengi, búið að vera mikið að gera, allir að byrja í skóla nema ég. Fyrsta bloggið verður aðallega myndrænt, myndir frá sumrinu – ferðalög og afmæli meðal annars. Við ætlum að reyna að vera duglegri að blogga í vetur, vonandi að andinn komi yfir mann oftar en hann hefur gert síðustu mánuði.Fjölskyldan fór á fjallabílnum í ferðalag til Tofino – Bamfield – Barkley Sound og fleiri staða í Ágúst. Frábær ferð og allir skemmtu sér vel.

Slideshow frá ferðinni .•
Í september fór ég og Sigurjón með peyjana í útilegu til Pachena Bay, frábær staður með virkilega flottu tjaldstæði. Þetta var karlmanna ferð, borðað með puttunum, rekið við þegar þörfin kallaði, og almenn villimennska látin ráða för. Smá frí frá reglum og mannasiðum! 
Slideshow frá Pachena Bay.
Svo voru haldin afmæli í september.
Óskar 8 ára
og Ísabella 4ja ára
Slideshow frá afmælunum
Og svo slideshow með öðrum myndum frá sumrinu
05,11,07...11:02 pm
Velkomin á nýja bloggið okkar
Jump to Comments


