
Vá 2 mánuðir síðan síðasta blogg, ekki nógu gott!
Eins og flestir vita stoppuðum við á Klakanum í sumar í 3 vikur náðum að heimsækja flesta, ekki alla því miður sorrý til þeirra.
Síðan við komum heim höfum við brallað ýmislegt. Eitt af því var ferð til Magnusar, Pam og Oluna í Bamfield. Bamfield er lítið þorp á vesturströnd Vancouver eyju. Þar er stór hafrannsóknarstöð sem að Magnús var að vinna hjá í sumar. Við gerðum ýmislegt, fórum í bátsferð, á ströndina, borðuðum krabba og lékum okkur í sjónum. Myndir segja meira en mörg orð þannig að hér er linkur á slideshow frá ferðinni.




5 Comments
11,09,08 at 3:54 am
Elsku Óskar Jósúa.
Innilega til hamingju með afmælið elsku kallinn minn. Það var yndislegt að hitta þig í sumar.
Kær kveðja til ykkar.
Amma Stoska
11,09,08 at 8:08 am
Elsku Óskar Jósúa okkar,
innilega til hamingju með afmælið þitt, vona að þú eigir rosalega góðan afmælisdag.
Við söknum ykkar alveg fullt og sendum fullt af knúsum og kossum,
Afmæliskveðjur frá
Evu, Elísu og strákunum
11,09,08 at 3:02 pm
Yndislegar myndir, að vanda. Takk fyrir heimsóknina í sumar, það var frábært að sjá ykkur. Sendum Ísabellu og Óskari síðbúnar afmæliskveðjur. Dagmamman mundi dagana en var að heiman og fékk því ekki af sér að hringja! Hlýjar kveðjur héðan úr Hafnarfirðinum.
Binni, Ráða og strákagengið.
12,09,08 at 2:05 pm
Elsku Snorri, Ísól, Óskar Jósúa og Ísabella
Gaman að heyra coment frá ykkur. Allt gott að frétta af okkur. Afmæliskveðjur til Óskars Jósúa og Ísabellu. Knús og kossar frá okkur öllum.
14,09,08 at 10:47 am
Jibbí loksins kom nytt blogg.
Tim hamingju með afmælin um daginn, vonandi eru pakkarnir komnir og ef ekki bara bráðum
Heyrumst sem fyrst.
Kv.KB, EÞK og EKE