
Ísabella og Óskar á aðfangadagskvöld
Já rosa dugleg alltaf hreint að skrifa á blessað bloggið. Haustið hefur verið viðburðarikt í skólum og vinnu og flest gengur sinn vanagang. Lentum í smá hiksti þó. Húsið sem við erum að leigja var sett á sölu okkur til mikillar gleði eða hitt þó heldur. Sáum fyrir okkur hópa af skoðurum inn á gafli, enn svo fór þó ekki. Fólkið sem á húsið setti 20 milljónum meira á húsið en fasteigna salinn ráðlagði og virkaði það líka svona vel til að fæla frá skoðendur. Nú er búið að taka húsið af sölu, enn við erum þó ekki búin að fá nein svör við því hvort við þurfum að flytja eftri 2 mánuði eða ekki.

Selma alveg að tapa sér í Pökkunum
Innflytjenda eftirlitið var líka með einhverja stæla og setti mig útaf sakramentinu, ég er því eins og stendur ólögleg vera hér í Kanada. Málið er að Ísól er nú að útskrifast blessunin og því voru áfangarnir hennar aðeins færri á haustönn, enn það má víst ekki leyfa mökum að að vinna fyrir sér ef að námið er ekki fullt. Þetta stendur reyndar hvergi skýrum stöfum svona til að forðast miskilning. Ég þarf því að sækja um aftur og borga aftur og aftur. Svone er þetta, af einhverjum ástæðum eru Innflytjenda eftirlit í flestum löndum hálf soðin fyrirbæri.

Ísabella upprifinn af spenningi
Ísól er auðvitað að útskrifast í júní og okkur hlakkar til þess, þó er það líka kvíðavænlegt eins og öll önnur tímamót. Ísól fær 3ja ára atvinnuleyfi hér í Kanada eftir útskrift. Spurning hvort ég fái atvinnuleyfi í leiðinni ef ekki þarf ég líklegast að finna mér vinnu í einhverju sweatshoppi í Vancouver með öllum hinum ólöglegu innflytjendunum.
Við áttum fín jól átum drukkum og hittum fólk og fylgja hér forláta ljósmyndir af þeirri gleði allri.

Óskar fagnar fæðingu frelsarans með vopn í höndunum
Þökkum öllum sem að sendu pakka, kort eða/og gúmmelaði…





2 Comments
23,01,09 at 4:19 pm
Jibbí, loksins koma fréttir og myndir, ekki gott með landvistarleyfið
27,02,09 at 12:02 am
Hæ hæ!! Var að skoða bloggið ykkar – Flottar jólamyndir. Kv. Ragga