18,03,09...11:46 am

Engar fréttir eru góðar fréttir

Jump to Comments

Tudor Ave.

Það er allt búið að vera að mestu leyti með kyrrum kjörum hjá okkur undanfarna mánuði. Við erum enn á Tudor Avenue þó svo að það fari að styttast í flutninga. Erum að verða spinnegal á öllum skoðununum, síðustu vikur höfum við þurft að vera að heiman á fimmtudögum og laugardögum frá 1-6. Þá eru skoðunardagar og með hækkandi sól virðist sem að fólk fái meiri áhuga á fasteignum.
VISA málin eru enn í þróunn, Ég er ekki búinn að fá svar um hvort ég hafi mátt vinna hér síðustu mánuði, það hlítur að fara að komast á hreint. Ísól fékk góðar fréttir með atvinnuleyfi eftir nám. Við fáum bæði 3ja ára atvinnuleyfi í sumar eftir að Ísól útskrifast. Það er mjög þægilegt, enda ferlega leiðinlegt að þurfa að sækja um þessi leyfi á hverju ári, fyrir utan kostnaðinn en hvert skipti sem nýtt plagg er útgefið fyrir fjölskylduna þarf að borga 65,000 kall.
Kreppan, það verður að minnast á hana, leiðinlegt að heyra frá klakanum allar þessar fréttir af atvinnuleysi og leiðindum – flestir í stórfjölskyldunni okkar eru sem betur fer á svipuðum stað, en þó hafa nokkrir hafa fengið að kenna á þessum fjanda. Við erum svosem heppinn með að vera í námi erlendis, en förum nú ekkert varhluta af þessu, það hækkaði auðvitað allt hér í Kanada um 100% þegar gengið á blessuðu krónunni fauk út í veður og vind, en nóg af þessu rausi.

Knús

Krakkarnir hafa það gott, Óskar stendur sig ótrúlega vel í skólanum, fékk einkunnir í síðustu viku og fékk allt í topp, drengurinn kom hér mállaus og á 3 árum er hann kominn í efra hlutfall bekkjarins í einkunum, greinilegur föðurbetrungur á ferð. Ísabella er búinn að vera dugleg í sínum skóla, með flottar einkunnir og fær extra prik fyrir kurteisi og vandaða framkomu, það eru nú allir svolítið hissa á því hér á heimilinu þar sem unga daman lætur nú heyra í sér duglega ef að eitthvað er ekki að hennar skapi, sem er stórt – aðallega á morgnanna þar sem hún slær morgunfýlumeistaranum mér við í morgunfýlunni. Reyndar fyndið að sjá þessa mjónu nývaknaða allveg brjálaða yfir því að foreldrarnir dirfist að vekja hana svona snemma. Þetta verður eitthvað skrautlegt eftir c.a 10 ár!

Isabella

Við erum farin að hlakka ógurlega til sumarsins, enda orðin góðu vön, finnst agalegt hvað það er kalt 7 stiga hiti í mars það er skelfilegt!! Svona er maður fljótur að venjast betri hlutum – Við komum ekkert heim í sumar, ætlum að ferðast um British Columbia og þá aðallega á meginlandinu sem að við höfum verið frekar lin við að heimsækja.

Enn nóg af blaðri, over and out.

4 Comments

  • Kristbjorg

    Gaman að heyra hvað krökkunum gengur vel, vona að þið séuð búin að finna húsnæði. Við söknum ykkar og vonum að við sjáumst sem fyrst
    bestu kveðjur frá Svíþjóð
    Krissa og co

  • Gott að heyra aðeins af ykkur – hvert eruð þið að flytja? Allt gott héðan; gefum skít í kreppu og erum ólétt og opnuðum veitingastað – kreppa hvað!
    Kossar og knús héðan úr skuldafangelsinu:)

  • Vá það er orðið langt síðan ég kíkti hérn inn, en æðislegt að sjá nyjar fréttir. Könnumst aðeins við svona morgunfílu en hefur skánað, vonandi tekur hún sömu stefnu hjá ykkur.
    Kv.KB

  • Gaman að lesa þetta! Sendum kærar kveðjur. Þetta var sumarið til að sleppa heimsókn á klakann. Rétt að leyfa gróminu að setjast eftir bankahrunið. Ég segi eins og kallinn: 3 flokkar keyrðu allt í stopp, sem var sannarlega markmið 4. flokksins sem ekki hafði náð fylgi til að koma því í verk sjálfur. En nú fær hann.


Leave a Reply