
Húsið í Metchosin, Libra Place
Búið að selja húsið og segja okkur upp leigunni á Tudor Avenue, Við eigum að vera farin út fyrir 30 júní. Okkur grunaði þetta og byrjuðum að leita að húsi eða íbúð í síðustu viku. Fórum og skoðuðum um helgina og vorum samþykkt sem leigendur í gær.
Við erum á leið útí sveit – Metchosin heitir byggðarlagið, um 40 mínútur fyrir utan Viktoría, getið séð kort af svæðinu hér View Larger Map
Við erum bara frekar spennt, þetta er svæði sem við hefðum getað hugsað okkur að kaupa hús, og þetta verður svona tilraun. Ísabella og Óskar eru búin að fá pláss í skólanum, sem er 3 mínútur frá húsinu – heitir Hans Helgesen Elementary eftir einhverjum Svíja sem var svona brautryðjandi í Metchosin.
Það er nóg pláss fyrir gesti, og þar sem að við erum ekki nema tæplega í 7 tíma fjarlægð(svipað og að keyra til Egilstaða) þá er auðvitað tilvalið fyrir fjölskyldu og vini að koma í heimsókn.



1 Comment
17,04,09 at 8:52 am
Æðislegt, til hamingju með að vera að flytja út í sveit. Ég ætla alveg að rembast við að vinna í lottó svo ég geti komið til ykkar. Kv Karitas