Entries Tagged as ‘Uncategorized’

22,06,09

Fréttir og fleira

Jæja þá er Ísól búin að útskrifast, útskrifaðist með Distinction með tvöfalt BA próf, Kynjafræði og Spænsku. Við erum ákaflega glöð og sæl með þennann áfanga hjá Ísól.
Við fengum í dag atvinnuleyfi í 3 ár þannig að sú óvissa er farin, vorum farin að búast við hinu versta. Frekar erfitt að flytja heim í ástandið [...]

23,04,09

Dagar í dalnum týnda

Svaka háfleygt nafn þegar það er búið að snúa því yfir á íslenskuna.
Ég er með þessa stuttmynd í keppni á Mec.ca endilega kjósið ef að þið hafið tækifæri til
tengillinn til að kjósa er http://tiny.cc/sYcPe og myndbandið heitir Tashish-Kwois Days in the Lost Valley

16,04,09

Búið að selja..

Húsið í Metchosin, Libra Place
Búið að selja húsið og segja okkur upp leigunni á Tudor Avenue, Við eigum að vera farin út fyrir 30 júní. Okkur grunaði þetta og byrjuðum að leita að húsi eða íbúð í síðustu viku. Fórum og skoðuðum um helgina og vorum samþykkt sem leigendur í gær.
Við erum á leið útí [...]

18,03,09

Engar fréttir eru góðar fréttir

Það er allt búið að vera að mestu leyti með kyrrum kjörum hjá okkur undanfarna mánuði. Við erum enn á Tudor Avenue þó svo að það fari að styttast í flutninga. Erum að verða spinnegal á öllum skoðununum, síðustu vikur höfum við þurft að vera að heiman á fimmtudögum og laugardögum frá 1-6. Þá eru [...]

22,01,09

Jóla jóla jóla myndir

Ísabella og Óskar á aðfangadagskvöld

Já rosa dugleg alltaf hreint að skrifa á blessað bloggið. Haustið hefur verið viðburðarikt í skólum og vinnu og flest gengur sinn vanagang. Lentum í smá hiksti þó. Húsið sem við erum að leigja var sett á sölu okkur til mikillar gleði eða hitt þó heldur. Sáum fyrir okkur hópa af [...]

24,12,08

Gleðileg jól

Gleðileg jól

14,09,08

Saltspring Island

Fórum með Sif og kó í útilegu á Saltspring Island. Svaka fjör og mikið stuð. Krakkarnir voru í essinu sínu, ekki amalegt að geta synt og buslað í vötnum á haustdögum
Saltspring Island er lítil eyja utan við Vancouver eyju – mikið af hippum, listamönnum og ýmsum spírum sem að búa þar. Hér er Slideshow frá [...]

10,09,08

Bamfield

Vá 2 mánuðir síðan síðasta blogg, ekki nógu gott!
Eins og flestir vita stoppuðum við á Klakanum í sumar í 3 vikur náðum að heimsækja flesta, ekki alla því miður sorrý til þeirra.
Síðan við komum heim höfum við brallað ýmislegt. Eitt af því var ferð til Magnusar, Pam og Oluna í Bamfield. Bamfield er lítið þorp [...]

16,06,08

Bangsi festur á vídeó

MYND:Greg Miller III INC.
Sigurjón er búinn að pósta nokkuð skemmtilegu vídeói á síðunni þeirra skellið ykkur þangað og skoðið

05,06,08

Já á meðan ég man…

Hvet alla lesendur þessarar síðu að smella á þennan tengil og kjósa myndirnar mínar. Það þarf ekki að skrá sig inn eða neitt bara ýta á stjörnurnar.
Hér er svo myndband sem ég gerði um daginn

Njótið, og sjáumst fljótlega.