Sigurjón er búinn að pósta nokkuð skemmtilegu vídeói á síðunni þeirra skellið ykkur þangað og skoðið
05,06,08
Já á meðan ég man…

Hvet alla lesendur þessarar síðu að smella á þennan tengil og kjósa myndirnar mínar. Það þarf ekki að skrá sig inn eða neitt bara ýta á stjörnurnar.
Hér er svo myndband sem ég gerði um daginn
Njótið, og sjáumst fljótlega.
22,05,08
Fjölskyldan á Tudor Avenue eyðir óvissunni
Við verðum á Íslandi í júlí
Blogginu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Snorra Gunnarssyni, talsmanni fjölskyldunnar á Tudor Avenue, Þar sem hann tíundar ástæður þess að þau munu koma til landsins.
„Þann 16.janúar á þessu ári sendi ég frá mér fréttatilkynningu þess efnis að við fjölskyldan myndum ekki koma til íslands á komandi sumri. Ástæða þess var ákvörðun eiginkonu minnar, Ísólar Karlsdóttur, um að stunda fjarnámskeið í hagnýtu hekli í Bandaríkjunum eða Bretlandi. Í sameiningu höfum við undirbúið þetta fjarnám ljóst og leynt í tæp tvö ár.
Í dag er hins vegar komin upp breytt staða. Nýverið bauðst Ísól einstakt tækifæri til að læra hekl hjá tengdamóður sinni á íslandi. Eftir náið samráð okkar hjóna og miklar vangaveltur höfum við því tekið ákvörðun um að koma til Íslands. Við erum bæði mjög ánægð með þá ákvörðun enda er hún í algjöru samræmi við yfirlýst markmið Ísólar um að læra að hekla dúk.
Þótt við komum til Íslands næsta sumar mun ég engu að síður halda áfram að eiga heima í Kanada „Þú ert þar sem þú heldur að þú sért”. Í framhaldi af því að ég mun áfram eiga heima í Kanada mun ég fara í sumarfrí til áramóta og nota tímann til að íhuga stöðu mína. Ég er mjög þakklátur öllum þeim sem hafa hugsað til mín síðastliðin ár og ég fagna því að fá að vera áfram hér á landi. En eins og staðan er í dag veit ég ekki hvar eða við hvaða verkefni ég mun starfa næstu árin eða hvaða vettvangur mun verða fyrir valinu. Ég hef komið víða við á ferli mínum og næsta hálfa árið mun ég litast um eftir tækifærum og einbeita mér að því að finna yfirgripsmikilli reynslu minni jákvæðan og uppbyggilegan farveg.”
Virðingarfyllst,
Snorri Gunnarsson
Yfirlýsingin í heild sinni eins og hún birtist í fjölmiðlum í morgunn
21,05,08
Heimför

Stíflu lóns botn norðarlega á Vancouver Island
Jæja þá er loksins komið á hreint hvenær við komum á klakann.
Við förum frá Victoria til Seattle, Sunnudaginn 29 júní – svo frá Seattle til Boston og erum lent á mánudeginum. Flugið til Íslands er kl. 14:35 – komin á skerið klukkan 23:40 mánudaginn 30 Júní. Við förum svo aftur heim þann 23ja júlí.
Ég ætla upp á hálendi í viku tíma af þessum fjórum vikum, við förum í einhverja daga norður í sveitasælu hjá Evu systur – Selfoss, Vogar, Keflavík og Hafnarfjörður eru á planinu og þorpið Reykjavík fær líklega mestatímann. Nú verðum við að plana þessa daga vel svo þeir fari ekki í letilíf og vitleysu.
Í öðrum fréttum er þetta helst.
Ég og Sigurjón fórum í gönguferð um helgina á Juan de Fuca göngustígnum. Löbbuðum 15 kílómetra eftir erfiðum stíg, sáum Birni í banastuði og svo einn sem að sólaði sig rólegur ofan á viðardrumbi við hliðina á stígnum. Þetta var hin besta ferð, skemmtileg og hressandi.
Annars er lífið bara rólegt og viðburða lítið sem er yfirleitt góðs viti.
18,04,08
Flutt
Krílin að hlýja sér við eldinn. Við vöknuðum einn morguninn í síðustu viku við mikinn kulda. Höfðum gleymt að kaupa olíu, en nýja pleisið er hitað með hinu svarta gulli. Hvernig eiga íslendingar sem að eru vanir heitu vatni sem að kemur inn um pípurnar að vita svona lagað?
Jæja þá erum við flutt í slotið. Reyndar eru nokkuð margir dagar síðan enn það hefur allt verið á fullu við að skvera pleisið og svo er húsmóðirin á heimilinu í miðju kafi í próflestri. Það er rétt að setja inn nokkrar myndir, fleiri koma svo á næstu dögum ásamt vídeói af fjölskyldu lífinu – svon fyrir ættingjana að sjá krílin sem eru enginn kríli lengur.

Arin, loksins – eitthvað sem Pyromaniakinn í mér hefur beðið lengi eftir
Annars er allt gott að frétta og líklega komum við heim í júlí í smástund, ef að við finnum flug sem að kostar minna enn hálfa milljón það er að segja! – Ótrúlegt hvað það er dýrt að komast á skerið, kannski ekki að undra þar sem klakinn er ekki beinlínis í leiðinni til annara landa.
Þetta ætti að skýrast á næstu vikum
20,03,08
Big in Japan
Tími á smá fréttir. Flutningarnir nálgast óðfluga og við erum byrjuð að reita í kassa, svona hægt og rólega. Við flytjum um helgina 29 mars og þurfum að skila af okkur hér hreinu og fínu þann 31. Þetta leggst allt vel í fjölskyldumeðlimi og allir orðnir spenntir.
Japanska blaðið sem við vorum að vinna fyrir kom út í síðustu viku. Ísabella er í blaðinu, svaka skvísa – sannkallað fjölskyldu verkefni. Hér eru myndirnar í Slideshowi og hér eru þær í blaðinu sjálfu.
Ísabella, Óskar og Ísól voru svo með mér og Greg, vinnufélaga mínum, í Nanaimo um helgina að taka myndir fyrir BC Ferries. Þau munu verða fyrir augum BC búa næstu árin sem Ferry fjölskyldan ógurlega. Við fórum 4 ferðir á milli Nanaimo og Vancouver – langur enn skemmtilegur dagur. Skelli myndum frá því inn fljótlega.
Enn eitt slideshow, þetta er frá ferð sem ég fór í september í Tashish-Kwois, 5 daga ferð á Kanó og gangandi – sáum Birni, Elgi, Erni og Sæljón meðal annars -Kíkja hér
Ætli næsta blogg verði ekki eftir flutningana í næstu viku. Takk allir fyrir kommentin voða gaman að fá smá viðbrögð.
29,02,08
Myndir
Nokkrar myndir frá síðustu mánuðum. Hef verið alltof latur að taka myndir svona í frístundum, það er ekki nógu gott og verður gerð bragabót á því næstu misseri.
Meira eftir More
Keep reading →
22,02,08
Flutningar
Jæja þá er loksins eitthvað fréttnæmt á seyði. Við fórum og skoðuðum hús í nágrenninu og sóttum um að leigja. Við fengum semsagt húsið og flytjum þann 1 apríl næstkomandi. Húsið er í svaka millahverfi 10 Mile Point, en húsið sjálft er voða hógvært, bara svona venjulegt kanadískt hús.
Það er þó flennistórt eins og flest hús hér, u.þ.b 250 fermetrar. Helmingurinn af því er reyndar kjallari, þvottahús og skrifstofa. Við erum bæði spennt og líka soldið leið. Spennandi að fá nóg pláss og sérherbergi fyrir gríslingana en um leið munum við sakna samfélagsins hér í Lam Circle.
Þetta er líka frekar stórt stökk peningalega, enn það er auðvitað ekkert skrýtið þar sem að Uvic Family Housing er mjög niðurgreitt. Ég er líka farinn að vinna og Ísól á leiðinni í vinnu, þannig að við verðum ekki lengur, Starving students. Ekki að við höfum verið að svelta neitt mikið, sem má sjá á mittismáli húsbóndans á Lam Circle.
Ég og Óskar fórum seint um kvöld að taka myndir af tunglmyrkvanum, fórum niður í Finnerty Cove og Cadboro Bay sem eru rétt hjá okkur, svaka gaman. Ég get svarið það að drengurinn talaði allann tímann um fjallaljón og birni. Hvernig við myndum verjast þeim ef það væri ráðist á okkur úr myrkrinu, afhverju við værum ekki með hníf, hvort að Luke Skywalker væri sterkari en björn, afhverju ég ætti ekki byssu og hvort að hann gæti fengið kveikjarann minn – þar sem að Cougars er hræddir við eld. Ég maldaði í móinn og sagði að BIC kveikjarar væru frekar lélegir sem vopn gegn fjallaljónum. Hann hefur auðvitað fullt traust á pabba sínum og sagðist ekkert vera hræddur. Ég var eiginlega orðinn smeykari!!
Hér er svo kort af tilkomandi flutningum
Smellið á myndina til að sjá hana stærri.
16,02,08
Kyrr kjör
Það er allt með kyrrum kjörum á Lam Circle þessar vikurnar. Krakkarnir stunda skólann og Ísól að rembast(með stæl) við síðustu önnina í Uvic. Þannig séð lítið að frétta.
Fyrirtækið gengur bara vel, við vorum að klára stórt verkefni fyrir Japanskt Tímarit, 10 blaðsíður. Það gekk vel og við skjótum aftur fyrir það í apríl.
Við erum farin að svipast um eftir nýju húsnæði þar sem leigumarkaðurinn er frekar erfiður og við viljum vera í sama hverfinu svo að krakkarnir þurfi ekki að skipta um skóla strax, þurfa þess líklega seinna þegar við finnum hús til að kaupa. Um að gera að raska ekki ró þeirra of mikið. Við skoðuðum hús hér í nágrenninu sem er til leigu og sóttum um. Þvílíkur próssess liggur við að maður þyrfti að gefa upp númer hvað nærbuxurnar manns eru. Fáum að vita þetta í næstu viku.
Þar sem ég er sonur móður minnar þá breyttum við í síðustu viku. Settum krakkana í svefnherbergið okkar, við fórum í vinnuherbergið og vinnuherbergið er þar sem að krakkarnir voru. Við ákváðum að gera þetta til að Ísabella og Óskar hefðu stærra pláss, Óskar er farið að langa til að hafa sérherbergi og það er ekki mögulegt hér þannig að þessi breyting ætti halda honum góðum þangað til við flytjum.
Það er farið að vora hér í Viktóríju – veðrið verður sífellt betra og hitinn farinn að hanga í 10-12 gráðum. Þetta er auðvitað mun skárra, að hafa veturinn í normal 4ja mánaða lengd. Léttir lundina og lætur mann langa meira í bjór og brasaðan grillmat.
Ég er reyndar enn þá að jafna mig eftir síðasta sumar, er rétt að komast í kjörþyngd aftur. Kiddi svili eða Kiddi svelgur eins ég kalla hann ýtti svoleiðis að mér bjórnum síðasta sumar, ég kenni honum alfarið um líkamlegt ástand mitt. Ég ætlaði að hefna mín á honum í sumar, þegar við komum til landsins en hann er víst að flýja klakann eins og fleiri. Hér er ágætis mynd til að lýsa fólinu, yfirleitt var þó bjór í hinni hendinni.















